svavat.bloggar.is
Hef ekki mikiš aš segja....Svava Traustadóttir
Hæhæ!!Jæja ég veit ekki hvort að það sem ég get sett hér inn sé einhvað athyglisvert en ég ætla samt að setja það inn. Júlímánuðurinn leið frekar hratt og ég gerði nú ekki mikið annað en að vinna eins og brjálæðingur í útsölunni sem var hjá IKEA.. Það var brjálað að gera allann mánuðinn og það er enþá brjálað að gera. Ég skil bara ekki hvar allt þetta fólk fær peninga til að geta verslað svona mikið. Ég er líka búin að komast að því að það er alveg ótrúlega mikið af fólki sem á sumarbústað, ég veit þetta því að fólk þarf alltaf að segja mér hvar það ætlar að hafa það sem það er að kaupa af mér( ég vil ekki vita það!).
Mig finnst samt svo rosalegt að ég skyldi hafa lifað af þennan mánuð þar sem ég fékk ekki neitt útborgað. Ég bókstaflega lifði á matnum sem ég gat fengið í Ikea og ég skal sko segja ykkur að ef þið borðuðu á hverjum einasta degi í Ikea þá myndi ykkur ekki finnast maturinn érna góður.. Mamma kom suður um miðjan mánuðinn og þá fór hún með mig í bónus og keypti handa mér mat, ég dýrka þessa konu.
Seinustu helgina í júlí kom svo hann Níels minn og var hjá mér yfir helgina, var samt að vinna alla helgina og að passa á laugardagskvöldinu en þetta var samt skemtileg helgi.
Svo um verslunarmannahelgina þá flaug ég vestur og það var æðislegt!!! á föstudeginum var bara slappað af og svo farið á ball með Buffinu og það er frábær hljómsveit. Á laugardeginum var svo bara slappa enþá meira af og svo djammað í Bolungarví í Kjallaranum og það var bara gaman. Sunnudagurinn fór í að rúnta einhvern ófæran veg í Land Rover jeppanum hans pabba í ekki minna en 6 tíma. Sunnudagskvöldið var bara afslöppun heima hjá Örnu Dalrós í svona partý tjaldi. Mánudagurinn var bara æði því að mamma bauð litlu börnunum sínum í svona seinnipartsmat og það var djúpsteiktur fiskur og rækja.
En núna er maður bara komin aftur suður og lífið orðið eðlilegt, ef það mætti kalla það eðlilegt....
en já ekki meira í bili :)
langt sķšan.Svava Traustadóttir
Halló allir!Ég veit að ég er búin að vera löt við að skrifa ég bara hafði ekki í mér að setjast niður og byrja að skrifa um einhvað sem mig fannst ekki skipti máli.
Ég er nú samt búin að vera á fullu að gera allskonar nýja hluti. Eins og ég flutti í þriðja sinn til Borgarinar núna 1.júní og fór að vinna aftur í IKEA, það er bara fínt skal ég segja ykkur ég þekki alla og allir þekkja mig og það er eins og é sé komin aftur til IKEA fjölskyldunnar minnar. En nóg um Ikea ég er líka búin að vera að sýsla með the redcross smávegis í sumar. Fór að hjálpa til á Selfossi að hjálpa við áfallahjálpina, var að skra fólk í hana og svara í símann og svara allskonar spurningum. Það var jafn skemtilegt og það var erfitt og ég held að ég hafi bara orðið betri manneskja fyrir vikið;).
En svo er það nýjasta nýtt að Hjörtur og Freydís gengu í það heilaga á seinustu helgi eða laugardaginn 28. júní og það var yndislegt!! Ég held að það verði mjög erfitt að toppa þetta brúðkaup því bæði athöfnin og veislan voru glæsileg í alla staði. Ég sem systir brúðgumnans söng í kirkjunni og svo var ég með smá ræðu í veislunni. ég verð að segja að ég hef aldrei skemmt mér jafn vel og ég gerði þarna. Þetta var yndislegt.
ég myndi setj einhverjar myndir inná ef ég barra kynni að gera það en því miður er ég ekki svo góð.
verð bara held ég að segja bæ í bili elskurnar og látið fara vel með ykkur:)
jęja žetta fór žį svona!:(Svava Traustadóttir
Sæl!
Ég gafst upp ég er hætt í skólanum, ég hætti fyrir 2 vikum og núna skammast ég mín, en þá var ég bara að bilast ég var að drukkna í skilaverkefnum og ritgerðum og alskona dót sem ég bara vildi ekki og ég verð að viðurkenna nennti ekki að gera. Núna fatta ég allt í einu að það var svo stutt eftir en ég er einhvað svo þrjósk að þegar ég bít einhvað í mig þá bara er ekki hægt að láta mig skipta um skoðun og núna er allt of seint að hætta við því að prófin eru að byrja á morgun og ég verð þá bara að lifa með þetta það sem eftir er.
En ég ætla þá bara að líta á björtu hliðarnar, ég er að fara í iðnnskólann í haust og á hönnunarbrautinni hefði ég ekki þurft að vera búin með sögu 313 og félagsfræði 323. Það er náttúrulega að segja ef ég næ að komast inn því að það er ekki byrjað að helypa inn umsóknum fyrr en 11. maí. En ég er vongóð:)
Ég er komin með vinnu í IKEA og það var bara ekkert mál og svo er ég komin með þetta fína herbergi hjá vinkonu minni og í þessari glæsilegu íbúð sem er í breiðholtinu, vá sko hún er risastór ég held að þetta sé 5 herberjaíbúð og við verðum bara tvær.
Í kvöld eru þeir í Bolungarvík sem eru á móti hinni nýju bæarstjórn að fara að mótmæla og ég er stollt að segja að ég verð ein af þeim, mig er alveg sama ef ske kynni að við verðum fá, við viljum ekki fara með okkur eins og við skiptum ekki máli við viljum sýna að okkur er ekki alveg sama og við munum ekki þegja!!!!! heyr , heyr!!!
Ekki það að ég viti mikið um pólitík en ég hef rétt á því að hafa skoðun og mín skoðun er sú að þetta sem gert var, var rangt og ætti aldrei að hafa gerst.
Svo að öðrum fréttum þá var ég um daginn á landsfundi URKÍ sem er ungmannafélag rauðakrossins og ég ásamt öðrum var kosin í stjórn URKÍ. Ég er rosalega spennt fyrir þessu og vona að þetta ár eigi eftir að ganga vel. Ég er að fara að vera með kynningu í Grunnskólanum núna í maí og er bæði spennt og stressuð.
Svo er brúðkaupið hjá Hirti og Freydísi óðum að nálgast og ég er búin að finna hinn fullkomna kjól til að vera í hann er æðislegur. Mamma er líka búin að finna á sig dressið og þá á Elísabet eftir að finna hinna fullkomna kjól, Magnús verður í kjólfötum og pabbi líka þannig að það þarf ekkert að hafa áhyggjur af þeim.
En já ég held að ég sé búin að segja frá öllu sem segja þarf í bili.
verš aš halda žetta śt:)Svava Traustadóttir
hæhæjæja þá eru bara eftir sirka 3 vikur af svona venjulegum skóla svo koma prófin og svo er komið sumarfrí.
Ég er samt alveg að gefast upp en ég er líka alveg búin að vera að gefast upp síða önnin byrjaði. En ég skal ná öllum prófunum sem ég tek og ég skal klára.
Ég er búin að ákveða alveg að ég ætla að fara suður í sumar og ég ætla bara að reyna að fá vinnu aftur í Ikea þótt að vinnutíminn sé leiðinlegur þá er maður nú samt á ágætis launum þó ég segi sjálf frá. Þetta er líka í kringum húsgögn og ég dýrka húsgögn, heillast af efnum og lögun af hlutum og bara allt. Ég ætla líka ða reyna að komast inn í iðnnskólann og ætla á hönnunarbraut, verð að prufa það ef það gengur ekki þá bara oki gekk ekki upp.
Vinkona mín er búin að bjóða mér að leigja hjá sér, rreyndar er enginn leiga því að foreldrar hennar búa í Namibíu og koma bara heim á jólunum og kanski 2 fyrir utan það á ári. Þá þarf ég reyndar að vera annarsstaðar í smá tíma en ég díla við það vandamál þegar kemur að því.
en já um helgina er ég að fara suður á námskeið hjá the red kross og svo eru ég og Níela að fara á tónleika með sinfó, hlakka mikið til:)
bæbæ
Svava hin duglega!!Svava Traustadóttir
HæÉg gerði heiðarlega tilraun til þessa að fara upp á skólabókasafn og læra og eftir korter sofnaði ég, alveg ótrúlegt hvað ég dugleg. En hey ég er allavegana ekki farin heim, er búin að vera í næstum 3 tíma eyðu og er að bilast, venjulega hefði ég farið heim og sagt skítt með þennan ensku tíma. En ekki lengur, hef eiginlega ekki efni á því núna þar sem ég var næstum því búin að láta reka mig úr skólanum bara út af mætingu og það er ekki gáfulegt.
Ég hef mikið verið að pæla hvað ég ætla mér að gera í sumar í sambandi við vinnu og fleira. Ég hef verið að spá hvort ég gæti farið suður og unnið eins og brálæðingur í IKEA en ég bara hrinlega vil ekki vinna þar aftur vegna leiðinlegra vinnutíma og mjög fáa frídaga og ekki eru launin einhvað að hrópa húrra fyrir. Ég hef verið að spá hvort ég ætti að sækja um á hótelinu hérna á Ísafirði því að ég hef reynslu af því að vinna á hóteli. Svo hef ég líka verið að spá hvort ég ætti að sækja um sem flokkstjóri í bæjarvinnuni í Bolungarvík í sumar þar sem ég hef ágætis reynslu þar líka.
Síðan er líka markmiðið að reyna að halda kanski aðeins í kaffibarþjónastarfið hvort sem það verði á Langa Manga eða á KaffiEdinborg.
En já pælingar á eftir pælingum.
Pįskarnir bśnir.Svava Traustadóttir
Jæja þá eru páskarnir búnir.Seinasta sýningin á Rocky Horror var á Páskadag og það gekk bara rosalega vel, og vá ég trúi bara ekki að þetta sé búið. Reyndar hefst núna sú vinna að ganga frá öllu og koma því snyrtilega fyrir inní geymslu leikfélagsins.
Það er eftir sirka 4 vikur af skólanum og vá hvað ég skil ekki hvað þessi vetur er búin að líða fljótt.
Ég er ekki búin að finna mér almennilegt sumarstarf en það kemur ég verð bara bjartsýn.
Ég veit eiginæega ekkert hvað ég á að segja en já það var rosalega gaman um páskana og ég skemmti mér mjög vel. Ég fór samt ekki á eitt einasta ball, ég var frekar peninglaus en ég kíkti aðeins á ,,aldrei fór ég suður,, og það var ágætt en aðeins og mikið af fólki fyrir minn smekk en svona eru víst svona rokkfestival.
en já nenni ekki meir :)
ojęja!!Svava Traustadóttir
hæhæjæja þá er kominn sunnudagur, var að vakna, var að vinna í nótt á langa manga og vá hvað það var rólegt.
ég ætti núna að vera að taka til en ég er svo löt í dag ég nenni því ekki en ég verð að byrja því að það eru jú nú að koma páskar og þá kemur alltaf svo mikið af fólki í heimsókn.
eftir páksafríið verða bara eftir 4 viku af skólanum, vá hvað það er mikið æði. vona bara að ég nái öllum prófunum:) það bara verður að gerast.
og svo var ég áðan að tala vi hana lóu mína sem er í danmörku og er ég mikið að spá í að reyna að heimsækja hana í maí eftir prófin, sé til hvernig það á eftir að ganga:P.
já vá sumarið... það er bara hinum megin við hornið... vá hvað ég hlakka til.
ég hlakka til að sjá grasið verða grænt og blómin blómstra og heyra fuglana syngja.
ég ltla ekki að vinna svona brjálæðislega mikið eins og ég gerði seinasta sumar, það var bara of mikið, ég ætla að fá að vera í sumarfríi en samt vinna nógu mikið fyrir að borga reikninga og svoleiðis. ég þrái að eiga áhyggjulaust líf þar sem ég get bara legið í hengirúmi og lsið bók eða bara sofnað og slakað á.
en jæja nóg komið af dagdraumum ætla að fara að byrja að taka til ,,illu er best aflokið,, sagði víst einhver:)
bless í bili.
ekki mikiš skešSvava Traustadóttir
hæþað er ú ekki mikið búi að gera hjá mér. orðið frekar rólegt, geðveikt skrýtið.
en páskarnir eru alveg handan við hornið og það verður svo þægilegt að geta slappað aðeins af. Svo er líka bara svo mikið af fólki að koma vestur og svo er aldrei fór ég suður hátíðin. En markmið páskana er bara að slappa af, þarf reyndar að vinna aðeins en það er bara hollt fyrir sálina.
En allt fólkið sem ætlar að koma eru: Níels minn, Hjörtur og Freydís,Dætur hans Bubba ( man ekki hvað þær heita) og svo eru miklar líkur á því að hún Þórdís gella kíki hingað því að henni langar svo að sjá Rocky Horror og svo líka er langt síðan að hún ætlaði að koma og kíkja í heimsókn.
En já sjáumst ég get ekki skrifað meir er í tíma:P
bæbæ
jęja žaš er fariš aš verša rólegra:)Svava Traustadóttir
hæhæÞað var frumsýning föstudaginn 29. feb. síðastliðin og það var æðisleg sýning og heppnaðist bara mjög vel eiginlega var þetta bara fullkomið, mjög góður salur þá meina ég að áhorfendur voru alveg að fatta vel húmmorinn sem er í þessu verki.
Eftir sýninguna var svo frumsýningarpartý og vá hvað ég skemti mér vel, þetta var bara náuðsynlegt að fá að missa sig aðeins og sleppa aðeins af beislinu. Ég var samt mjög stilt held ég bara og líka bara mjög pen (eins og alltaf;P).
Núna erum við búin að sýna 3 sinnum og er 4 sýning í kvöld og lífið er að verða aftur eðlilegt. Ef líf mitt kallast eðlilegt það er að segja:P. En núna get ég aftur farið að vinna og skólinn er kominn aftur á fullt.
Ég hef mikið verið að spá hvað ég eigi að gera í sumar. Það segir sig sjálft að ég þarf að vinna eins mikið og ég get þar sem maður á skuldir og reikningar sem koma reglulega og ég rétt næ að halda mér á floti en svona er bara lífið, og ég sé ekkert eftir þeim peningum sem ég þarf að borga í hverjum mánuði því að hlutirnir kosta og til þess að geta gert það sem ég vil þá verð ég að borga fyrir þá en það er bara gangur lífsins.
Sumrið verður stútfullt af alskonar skemtilegum uppákomum.
Hjörtur og Freydís eru að fara að gifta sig loksins þann 28. júni og ég og Elísabet sýngjum í kirkjunni og Magnús spilar undir á gítar, það er ekki amalegt að eiga svona hæfileikarík systkyni.
Ættarmótið lángþráða verður svo 16. júlí og hitti ég þá alla vitleysingana sem ég er skyld í móðurfjölskyldunni, vá hvað það verður mikið stuð.
Svo í ágúst eða vikuna 13-17. ágúst verð ég leiðbeinandi í sumarbúðum Rauðakrossins. Ég hlakka svo mikið til að það er bara ekki eðlilegt.
Það sem er næst á dagskrá hjá mér er að ég er að fara að taka þátt í undankeppni söngvarkeppni menntaskólanna sem verður á næsta laugardag. Ég ætla að taka lagið: Ó, að það sé hann , sem er gamalt lag með Ellý Villhjálms en er í flutningi Guðrúnar Gunnarsdóttur. Frekar gamalt lag en það er ekki búið að ofnota það eins og mög önnur lög sem eru oft í svona keppnum.
Nóg í bili
bæbæ
Žaš fer aš lżša aš žvķ!!!!!Svava Traustadóttir
Hæ öll sömul!!!Jæja vá ég hef áður verið að væla yfir því að ég hefði mikið að gera!! hehe, vá hvað ég hafði rangt fyrir mér. Ég skil ekki afhverju einhverjum myndi langa að vinna við að leika. Þetta er mjög líklega með erfiðari og krefjandi störfum sem til eru. Ég ber mikla virðingu núna fyrir því fóli sem vinur við þetta allt árið um kring. Ég ber enþá meiri virðingu fyrir þeim sem koma að: búningum, ljósum, hjóði, tónlist, leikmunum, leikmynd og bara öllum þeim sem þurfa að gera alla hlutina sem virðast svo ómerkilegir en eru mjög líklega mikivægastir og svo er það auðvitað leikstjórinn sem er svo límið við þetta allt saman og ber ábyrðina að sýningin sé þess virði að sýna verkið.
Það skipta allir máli þegar sett er upp einhvað leikverk, allir jafn mikilvægir.
Það eru bara nokkrir dagar í sýningu og allt að gerast







